|
Dagur sauðkindarinnar var haldinn í 4. sinn í Skeiðvangi, reiðhöll þeirra Rangáþings-eystra manna.
Allt gekk vel, margt fólk og mikið af fallegu sauðfé. Við sem höfum staðið að undirbúningi þessa
viðburðar erum þokkalega sátt með daginn.
Fyrir okkur hér á Kaldbak var dagurinn afar góður þar sem við fengum viðurkenningu fyrir
ræktunarbú sýslunnar þetta árið. Áður hafa búin á Ytri-Skógum, Skarði og Teigi 1 fengið þessa
viðurkenningu. Auk þess fengum við viðurkenningu fyrir bestu 5 vetra ána. Hér á eftir fylgja
nokkrar myndir frá deginum. Nánari umfjöllun verður síðan í Bændablaðinu sem næst kemur út.

Viðurkenning fyrir ræktunarbú sýslunnar 2010 og bestu 5 vetra ána 2011.

Rökkvi Hljómur og Harpa Rún frá Hólum og Brynjar Gísli í Þjóðólfshaga.

Klara Hallgerður á Kaldbak og Steinn í Hjarðarbrekku.

Frændurnir Haraldur Gísli og Sverrir í Selsundi.

Björk í Selsundi kom með rokkinn og kenndi gestum að spinna.

Gunnar í Húnakoti og Erlendur í Skarði.

Áhugi gesta er mikill að fá að þukla hrútana að dómi loknum.

Fljótshlíðingar með þrjá efstu hrútana Jón Örn í Hlíðarendakoti með efsta lambhrút sýningarinnar
en hann hlaut 90 heildarstig, Guðni í Teigi með hrút sem var í öðru sæti og loks Viðar bóndi með
hrút frá okkur sem var í þriðja sæti, sá er undan Arði og Demantsklönku.

Jón Örn með 90 stiga hrútinn frá Hlíðarendakoti.

Þarna sýnist mér Harpa Rún vera strax orðin mjög sigurviss um að vinna litakeppnina, Rökkvi Hljómur
með henni.

Enda varð raunin sú að gimbrin hennar rústaði keppninni með meira en helming greiddra atkvæða,
enda gimbrin litfögur svo eftir var tekið. Að launum fékk Harpa Rún málverk eftir Gunnhildi í Berjanesi.

Þarna eru veturgömlu hrútarnir komnir í röð og ystur er Jón í Austvaðsholti með sinn kosta grip
sem varð efstur í flokki veturgamalla hrúta.

Jón með Borðasoninn.

Jón í Austvaðsholti, Erlendur í Skarði og Stefan í Þjóðólfshaga.

Lovísa og Vignir í Hemlu áttu bestu gimbrina á sýningunni.


Hermann Árnason var kynnir og stjórnar þarna uppboði af myndarskap. |